Já best að kreysta út blogg er ekki kreysta með "Y" ?
Já nú eru komin út boð á landsliðsæfingarnar í flauti sem verða dagana 19-23 desember en ég ætla ekki að gefa upp heimilisfangið þar sem öfundsjúka fólkið gæti mætt óboðið og valdið leiðindum. Þið sem fenguð ekki boð , ekki fara að væla , þið eruð einfaldlega ekki landsliðsefni. Kannski á næsta ári.
(Hérna ætlaði ég að setja mynd af manneskju vera að flauta en þar sem það er vonlaust að finna mynd af því . . Ímyndið ykkur að hérna sé mynd af því )
Eeeen það fer að líða að því að ég komi heim á Ísafjörð á bara 2 próf eftir , Félagsfræði og Íþróttir .. ætla nú rétt að vona að ég nái íþróttunum en Félagsfræðin gæti vafist aðeins meira. Ætti að vera kominn heim svona 12-13 desember en það fer allt eftir hvort bílskrattinn fari í gang þar sem hann fer ekki í gang ef of kalt er úti , vona að það verði nógu heitt úti um það leiti sem ég ætla að halda heim á leið. Ég ætlast til að sjá skylti við bæjarmörkin sem stendur á : " Velkominn heim Haffi! " annað væri vitleysa
Ef ég ætla að tala eitthvað um fótbolta þá er ég glaður að ég missti af leiknum gegn Víði um daginn þar sem um slátrun var að ræða . . eins og fólk veit kannski þá féll ég í stærðfræði um daginn þannig ég get ekki borið fram svona stórar tölur. Liverpool tapaði sínum fyrsta leik núna á laugardaginn gegn . . Reading en það var betra að tapa á móti þeim en einhverjum öðrum því um 2 Íslendinga var að ræða. Nýji þjálfarinn hjá BÍ/Bolungarvík hringdi í mig og vakti mig þó klukkan hafi verið half 5 eða eitthvað . . hvað heitir hann aftur ? Milo ? og var hann að segja eitthvað og man ég ekki mikið eftir þessu þar sem ég var enn í draumaheimi í þessu samtali okkar.
Bless í bili
Þrölli að gefa mér faðmlag um daginn
-HaffiCarra
09. desember 2007 klukkan 03:04
Haffi Agnarsson 9 athugasemdir
Sjett hvað ég er ekki að nenna að blogga , það líða svona 2 vikur á milli blogga hjá mér. en ég ætla að reyna að draga þetta eitthvað á langinn.
Svo að ég komi að fyrirsögnini hjá mér , þá er ég íslandsmeistari í að vera lélegur í stærðfræði , sama hvað ég reyni að skilja allar þessar helv. tölur og BÓKSTAFI sem er svo bætt þarna inní til að rugla allt , þá bara er ég ekki að ná þessu og ætli ég sé þá ekki að fara að taka þennan blessaða Stæ102 áfanga í 3 SKIPTI þegar ég kem í skólann á Ísó!
En úr stærðfræðar tali í Pælingar og dóterí þá átta ég mig aldrei á því afhverju það sé ekki landslið í flauti já flaut , gerir stút á varirnar og blæst og þá kemur fallegt hljóð (hjá mér allavegana) já landslið í flauti , þar finnst mér ég klárlega eiga heim þar sem ég er afbragðs flautari. Já í tilefni að því að ég byrjaði að tala um landslið í flauti þá ætla ég að boða til landsliðæfingar í flauti um dagana 20-23 des. og fá þeir formlegt bréf/tölvupóst einhverntímann á dögunum.
Sko , þegar maður hefur eitthvað um að tala/blogga þá getur maður alveg bullað og bullað , maður þarf bara smá efni í hendurnar og stuðning og eini stuðningurinn sem ég fæ við að bloggar er frá sönnum aðdáanda , Hákoni D. Guðjónssyni ( Hákon , þú þarft að fara að gera eitthvað í þínum blogg málum)
Fótboltinn Næstu helgi , dagana 30nóv - 2des þá verð ég í Borgini þar sem litli kallinn hann Daði á afmæli jú Daði er að verða 1 árs og tek ég fram fyrir þá sem ekki vita að hann er sonur Róslaugar systur minnar og kærasta hennar Grétars , en um þá helgi er einmitt Íslandsmót innanhús þar sem BÍ/Bolungarvík er að fara að spila , og veit ég ekki alveg hvernig það gengur fyrir sig eða hver er að fara að spila þetta og auðvitað væri maður til í að vera með :D , en horfir víst bara á. Utandeildin á Ísafirði er víst á fullu núna og er mitt lið BK Viggó ekki að gera það nógu gott þar sem það vantar hálft liðið , annað hvort meiddir eða eins og í mínu tilviki staðsettur annars staðar á landinu og vona ég samt að hún verði ennþá í gangi þegar ég kem heim í Desember svo að ég nái að spila einhverja leiki , er nú bara buinn að spila einn sem var reyndar bara á "undirbúningstímabilinu" en náði ég að setja 2 í 6-6 jafnteflis leik.
Uppfærsla Ég er tótally buinn að ... eða allavegana að setja inn svona Um Mig dæmi hef séð það á ótalmörgum síðum og þar sem ég hef ekkert að gera þá ætla ég að fylla það út og skella því herna inn til hliðar
þá held ég að það sé komið nóg núna með þetta blessaða blogg og ætla ég bara að skella inn einni mynd að lokum bara og verður það myndir af ásgeiri sem ég sá inná síðuni hjá ívari og er hún svo ógeðslega shit fyndin!!
25. nóvember 2007 klukkan 01:16
Haffi Agnarsson 8 athugasemdir
ó mæ sko .. var buinn að skrifa fullt og svo yti ég á vista og allt kemur fyrir ekki askjgfbsakfohg jæja .. ég reyni að koma með svipað og ég var kominn með ...
Miklar pælingar hafa verið í gangi um að koma bara heim á áramótum á ísafjörð.. Heima er best ?? því maður saknar líka allra , og allir sakna mín :D
Já ég hef ekki verið að gera mikið seinustu daga nema þá fara í skólann og læra og svo reyni ég að fara í fótbolta en hef gert lítið af því undanfarið því ég er slæmur í hnénu , . . en ég fór í VMA bolta um daginn í höllinni og meiddi ég mig þar líka en það var ekki í hnénu , ónei ég rústaði á mér tánni sem er við hliðina á stóru tánni , og nei ég veit ekki hvernig ég fór að því en hún er núna fjólublá og ég get ekki hreyft hana og ég haltra vegna támeiðsla , ekki kúl það
en ég get sagt ykkur það stoltur að ég ér orðinn pró í handbolta og skal ég taka ykkur í handbolta ísfirðingar ef svo kemur á daginn , því jú ég er að "æfa" handbolta í íþróttum .. er í svona handbolta kennslu fram að áramótum og þótt ég segi sjálfur frá þá er ég buinn að taka hörku framförum :D
En úr handbolta í fótbolta .. hvernig verður næsta sumar hjá BÍ/Bolungarvík ?? er ekki slatti af gengi að fara ?? Ásgeir og Binni í fylki ?? Jón Ingi hvert ? Sandgerði eða keflavík r sum.. eru fleiri að fara ?? komið með það Hákon í Dagenham & Redbridge ?? Einnig er Sigurjón nokkur Hallgrímsson kominn í Ullensaker/Kisa
kommentaflæææði
11. nóvember 2007 klukkan 21:21
Haffi Agnarsson 5 athugasemdir
Miklar vangaveltur hafa verið í gengi .. þar sem ég hef verið að spá í að koma heim á áramótum og ganga i skolann þar með tilheyrandi. ? ? ?
ég skrapp á Ísafjörð á helgini , alltaf janf mikið að gerast þarna jújú , ég kom á föstudeginum og datt strax inní party hjá ónefndum aðila að nafni Andri og þar voru menn að gíra sig fyrir ballið í víkini , ég var ekki að fara á þetta ball . . ég kom bara þarna á vinafund og rúntaði svo þegar ég fór þaðan með Lísu og aroni s og svo til rekkju. Laugardaginn svaf ég yndislega vel út og horfði svo á leikinn Man.Utd - MBoro og þaðan og heim og svo að ná í lísu í vinnuna um 4 leitið. Svo lá leiðinn í bolta með Viggómönnum útá gerfigrasi og var fínt að sprikla svona og eftir boltann var hamast við að hafa sig fínann fyrir "Lokahóf" BK Viggó sem gékk ágætlega með Viggóleiknum Buzz í fararbroddi og þegar leið á kvöldið og allir voru horfnir eitthvað þá röltum við Þrölli , Maggi og ég heim til Magga þar sem ekkert far var að fá í eitthvað afmælisparty útí bæ. á endanum kom svo Lísa og náði í okkur og skultaði okkur í þetta afmælisparty sem við vorum ekki lengi í og fórum í Edinborg þar sem eitthvað 50+ party var og var 20 inn.. ég var þarna lang yngstur og var ekkert gaman þarna heldur og fórum við Maggi , Þrölli heimáleið bara eftir smá sælu rúnt og var ég svo langður af stað heim um 2leitið á sunnudeginum.
vangaveltur..ætti eg að koma heim í fjörðinn góða
29. október 2007 klukkan 21:23
Haffi Agnarsson 11 athugasemdir
Er á akureyri . var á ísafirði seinstu helgi , þar sem ég átti langar helgi frá skólanum og var bara ágætt á ísafirði má samt vera aðeins meira að ske þarna ... en ég kom mér í lið við BK Viggó
og spilaði ég einn leik með þeim á móti , Víkurunum ? og fór leikurinn 6-6 þar sem ég sjálfur setti 2 draghaltur
´Núna á helginni eru ísafjarðar gengið á langri helgi frá skólanum þar og ætlar hún Lísa að koma hingað á Akureyri að skoða :) og þar næstu helgi er ég örugglega að koma aftur á ísafjörð því að uppskeruhátíð BK Viggó er þá helgina , eða hún er allavegana sett þá og vona ég að ég verði látinn vitaer því verðuri breytt.
Á leiðinni frá Ísafirði hingað á Akureyri var ekkert geggjaðslega skemmtilegt veður , það var hálka , snjókoma og vindur .. ekkert sérlega gaman að keyra i því , en komst ég samt heill alla leið og meira að segja án þess að sprengja dekk á sama stað og er buið að gerast i öll skiptin sem eg keyri frá Ísafirði til Akureyrar , á þessum bölvaða stað þar sem vegurinn liggur yfir indjána grafreit..slapp við það..nema ég týndi hjólkopp samt..en skárra en að sprengja býst ég við.
Sony Ericsson síminn minn er ennþá til sölu , og ég íhuga skipti einnig ekki vera feimin að spurja mig um hann þvi ég veit öllum langar í síma sem ->ÉG<- hef átt skal meira að segja leyfa þér að hafa mig í símaskránni hjá þér ef þú kaupir hann.
er að fara að slútta þessu þar sem ég get ekki kreyst upp meira til að blogga um. Ég fer að blogga aftur um leið og ég finn eitthvað bloggefni :)
17. október 2007 klukkan 20:53
Haffi Agnarsson 3 athugasemdir
Maður þarf að koma inn bloggi herna eg er bara svo uppiskroppa með efni..
Seinustu daga hef eg bara verið i skolanum og læra og meira til en skrapp svo a Isafjörð seinustu helgi , skrapp og ekki skrapp agæt vegalengd fra Akureyri til Isafjarðar en það var bara hressandi og eg skemmti mer agætlega a Iso hitti Lisu :) og fleiri og allir mjög anægðir að sja mig vist þvi eg var rennblautur eftir kossa og sleiki fra folki :S Það var svosem ekkert mikið gert a Isafirði , eg keyrði þangað eftir skola a föstudeginum og var kominn um 10 leitið og for að heimsækja hana Lisu og forum við a runtinn og forum i party þar sem var svaka stuð en vorum ekkert lengi þar forum bara aftur a runtinn og var þa Aron með okkur og stelpan hans svo enduðum við kvöldið a að fara i heitapottinn og svo að sofa bara. A laugardaginn var osköp litið um að vera eins og oof of a isafirði þannig það var bara runtað aftur og við Lisa leigðum okkur spolu sem við reyndar sofnuðum yfir : Zodiac , langar ennþa að sja hana samt. Sunnudaginn vöknuðum við og fengum okkur að eta og svona og svo var horft a fyrrihalfleik af Liverpool-Tottenham þvi að sjonvarpsteningin var eitthvað að striða okkur og for eg lika af stað aftur a Akureyri þa bara sem tok agætan tima. Þegar eg var uppa .... heiðini þarna retthja Akureyri þa sprakk hja mer dekk , sem vildi svo til að eg hafi sprengt annað dekk seinast þegar eg keyrði þarna! hvilir bölvun þa þessum stað..byggt a indjanagrafreit eða eitthvað! en ja , það var svarta myrkur og eg steig ut og byrjaði að skipta um dekk an þess að sja neitt og allir keyra bara framhja manni og bjoða enga hjalp..eg myndi hjalpa ef þið væruð i svartamyrkri að skipta um dekk..diiiii en til allrar hamingju þa stoppaði indæll maður og beindi ljosum sinum svo eg gæti seð og hjalpaði mer svo að skipta um dekk og eg komst a afangarstað um 11leitið og sofnaði um leið. Manudaginn þa byrjaði þessi indæla skolavika , manudagskvöld for eg svo i bio a Hallween eftir Rob Zombie sem er ju , mjög sjuk mynd en mæli samt með henni.
nuna er miðvikudagur og a morgun er fimmtudagur og eftir skola a morgun legg eg af stað aftur a Isafjörð þar sem það er löng helgi hja mer og verð fram a manudag og vona eg að það verði aðeins meira lif i þessum bæ þa helgi!
Þetta er orðið hörku blogg bara ...
Eg er ekki ennþa kominn með myndavel til að taka myndir til að setja herna inn þannig eg hendi alltaf bara inn mynd og mynd af netinu en það nyja er bannerinn goði ;)
10. október 2007 klukkan 23:07
Haffi Agnarsson 14 athugasemdir
Ég er hérna með fallegan Sony Ericsson til sölu og hugsa möguleg skipti hann er svona klapp/samloku sími en hann lokast ekki alveg .. gerðist eitthvað skemmtilegt við hann en er alveg fullkomnlega í lagi samt ...komið bara með tilboð.. ((Svona einakrónu brandarar eru afþakkaðir))
Þrölli P vildi endilega fá smá blogg um sig og ég skal láta það eftir greyinu en sögur segja að hann sé að dúlla sér með skvísu ? hver er þar á ferð hann var víst á OC date-i með henni sem að lengdist um einhverja marga klukkutima ,.. djöfull horfðu þau á mikið af OC..eða var eitthvað annað í gangi ? Þrölli þú ert yndi :-) - Endilega segðu mér frá deitinu -Þrölli í góðum gír- Aron S vildi ekki fá smá blogg um sig en mér er sama hann er einnig að dúlla sér með einhverri og horfa ekki á OC saman allavegana hver veit hvað þau eru alltaf að gera .. þau eru nú buinn að fara á meira enn eitt deit hvernig standa mál Aron ?
- Ásgeir er í ruglinu Vill fólk eitthvað ákveðið bloggefni ? og nei Palli ég verð ekki nakinn
25. september 2007 klukkan 14:18
Haffi Agnarsson 30 athugasemdir
Búinn að skólast svoldið seinustu daga og æfa með Þór , sem er bara nokkuð ágætt. eee já.
Ef einhver þarf að kvarta yfir Ásgeiri Gíslasyni um að hann sé alltaf að bera sig og annað skal hann bara skella inn kvörtun hingað í gestabókina eða bara í "komment"
og ef einhver á örbylgjuofn eða/og ísskáp sem hann vill missa endilega latið vita (verður að vera í lagi allavegna)
19. september 2007 klukkan 19:03
Haffi Agnarsson 5 athugasemdir
Já nú kemur færsla frá Miðvikudeginum til dagsins í dag , sunnudags
Á miðvikudaginn vaknaði ég í skólann og skólaðist í einhverntima og þurfti svo að koma mer útá flugvöll því ég er að fara í flug á leið til rvk. svo þaðan og heim á Ísafjörð fer í flugið kem til rvk-ur og sest þar og bíð ettir næsta flugi til ísafjarðar var buinn að bíða í smá tíma þegar það stendur á skjánum Flug til Ísafjarðar FRESTAÐ neih þá kemst ég bara ekkert til ísafjarðar og þarf að hringja í Róslaugu og biðja um gistingu og far frá flugvellinum og á hann daginn ettir. Svo vel vildi til að Grétar og fleiri eru að fara á landsleikinn Ísland-Norður Írland og fékk ég að vera memm í stuðningsgrúbbu Íslands og vera 12maðurinn í leiknum vorum við með ágæt læti og heyrðist ekki í áhorfendum Norður Íra þótt þeir væru í aðeins stærri tölu. Og endaði jú leikurinn 2-1 fyrir okkar mönnum!
eftir leikinn fór ég með honum Smára í eitthvað hús og við fengum okkur pizzu og fengum okkur blandípoka eftirá..svo keyrði hann mig til Róslaugar og Grétars þar sem ég gisti á sófanum yfir nóttina. Vaknaði Fimmtudags morgun kl half 8 til að tékka á flugi heim á ísafjörð sem var svo kl hálf 9 og komst ég í fjörðinn eftir ágætann rússíbana þar sem Dóri Skarp grenjaði vegna ókyrrðar í loftinu. Það eru alveg frábærar samankomur þegar allir farþegarnir koma saman maður eftir góðar flugferðir og þjappa sér saman á einn stað í kringum færiband sem færir fólkinu , eins og litlum krökkum töskurnar þeirra..frábær stund!
Á þessum Fimmtudegi átti hin mikli leikur BÍ88/Bolungarvík - Tindastóll að vera en var frestað vegna veðurs þvílíkt bull. og í staðinn var æfing í góða veðrinu og uppskeran af þessu fresteríi þá var hann Sigþór Snorrason kominn í bann..ekki svo gott enn jújú á föstudeginum þá spiluðum við þennan mikla leik , náttúrulega seinni leikur liðana um að komast í 2.deildina á næsta ári og vorum við miilljónn sinnum betri í öllum leiknum ( sama hvað þú kemur með Rúnar þá vorum við miklu betri ) en við unnum hann bara 2-1 og það er samanlagt 4-2 TAP hja okkur :( Í þessum leið spiluðu allir okkar menn hreint frábæran leik nema Ásgeir "Hundur" Gíslason hann er alltaf lélegur <--- gríín. en já ekki gott mál þar og voru allir í fýlu fram að laugardeginum þar sem ALLIR skemmtu sér konunglega á lokahófi BÍ88/Bolungarvík fram eftir kvöldi. á Lokahófi þessu var Matur , Sveppi brandarakall , verðlaunaafhending og frábært fólk. fyrst ég er nú buinn að tala um verðlaunaafhendingu get ég sagt að ég vann Efnilegasti leikmaður BÍ88/Bolungarvík og bestu verðlaunin þar sem ég fékk viðurkenningu fyrir að standa með mínum mönnum og segja upp í vinnuni til að spila mikilvægan leik Besti leikmaður BÍ88/Bolungarvíkur var kosinn Pétur Geir Svavarson en einnig var hann markahæðsti leikmaður sumarsins hjá okkur þá veit ekki með allt landið.... ?
Þennan Sunnudag , vaknaði ég og hafði mig til því að ég var að fara í flug aftur til Akureyrar og er ég þar núna.
Þetta er búið að vera ágætt blogg hjá mér , svona langt og gott og ætla ég að henda inn mynd af mér með verðlaunin!
Og já , Arnar Guðmundsson
bæbæ
-HaffiCarra
16. september 2007 klukkan 19:33
Haffi Agnarsson 17 athugasemdir